Otto David Tynes – minning
Fallinn er frá góður félagi, Otto Tynes. Fyrsta starf Otto í flugi var sem siglingarfræðingur um borð í flugvélum Loftleiða frá árinu 1964 og var hann samfellt á flugi það sem eftir var starfsæfinnar sem siglingarfræðingur, flugmaður og flugstjóri. Auk þess að vinna við flug alla sína starfsæfi, hafði Otto ódrepandi áhuga á grasrót flugsins og vildi veg einkaflugs á Íslandi sem mestan. Hann stundaði kennslu í bóklegum greinum til einka- og atvinnuflugs til fjölda ára og eru þeir ófáir flugmennirnir sem setið hafa námsskeið hjá Otto og að sjálfsögðu var siglingarfræði hans aðal fag þó svo að hann hafi verið jafnvígur á flest. Otto hafði einstakt lag á að gera siglingarfræðina að áhugaverðu námsefni og flugu oft reynslu sögur með. Auk þess að kenna á grunnnámsskeiðum hélt Otto fjöldamörg upprifjunarnámsskeið í bóklegumfræðum fyrir einkaflugmenn sem oft á tíðum voru unnin í sjálfboðavinnu fyrir flugklúbbana út um allt land.
Ekki er hægt að minnast Otto nema Piper Cub flugvélar komi upp í hugann, en segja má, að ef maður sá Otto á einhverjum flugvelli þá var Piper Cub ekki langt undan. Upphafið að áhuga hans á þessari flugvélartegund er vafalítið að finna í þeirri staðreynd að hann lærði að fljúga á slíkar flugvélar. Árið 1987 var hann einn af lykilmönnum í stofnun flugklúbbsins Þyts og að sjálfsögðu var fyrsta flugvél hins nýja klúbbs Piper Cub TF-KAO. Um svipað leiti varð Otto virkur félagi í Flugklúbbi Mosfellssveitar (FKM) eins og klúbburinn hét þá. Síðar átti hann eftir að gegna stöðu formanns klúbbsins í tvö kjörtímabil við góðan orðstír. Í gegnum árin hefur Otto tekið þátt í fjölda mörgum viðburðum og skemmtunum á vegum klúbbsins og ljúfari og þægilegri félaga er vart hægt að hugsa sér.
Sitt síðasta flug á atvinnuflugvél fór Otto á Twin Otter flugvél Flugfélags Íslands og lenti þá á Tungubökkum og er það stærsta flugvél sem lent hefur á flugvelli FKM.
Eftir starfslokin snéri Otto sér að hugðarefni sínu – Piper Cub. Hann safnaði 15 manna hópi sem samanstóð að mestu af “öldungum” í fluginu og keypti fyrstu Piper Cub flugvélina sem flutt var til landsins, TF-KAK, og úr varð flugklúbburinn KAKan. Þessa flugvél gerðu þeir upp í betra en nýtt ástand í skýli á Tungubökkum og var fyrsta flugið að aflokinni uppgerð farið í janúar 2011 og fékk flugvélin við það tækifæri nafnið Otto Tynes.
Frá upphafi flugklúbbsins KAKan hafa þessir öðlingar mætt eitt kvöld í viku niður á flugvöll til að spjalla og þrátt fyrir langvarandi veikindi lét Otto sig ekki vanta ef nokkur leið var að komast út úr húsi.
Við kveðjum nú mikinn flugáhugamann, ljúfmenni og góðan félaga. Hvíl í friði.
Stjórn FKM
Úrslit úr lendingarkeppni 2018 (fyrri hluti)
Lendingarkeppni FKM, Úrslit úr fyrri hluta, 31. maí 2018.
Alls tóku 14 keppendur þátt í fyrri hluta lendingarkeppni FKM sem fór fram fimmtudaginn 31. maí. Veður var gott og mæting með betra móti. Klúbburinn bauð upp á kaffi og kökur á meðan á keppni stóð og voru fjölmargir gestir að fylgjast með.
Í fyrstu þremur sætum voru:
1. Orri Eiríksson TF-PAC 71 refsistig
2. Hjörtur Þór Hauksson TF-FIM 102 refsistig
3. Pétur Jökull TF-API 113 refsistig
Nánari úrslit er hægt að sjá með því að smella hér.
Aðalfundur FKM 2018
Aðalfundur Flugklúbbs Mosfellsbæjar (FKM) var haldinn laugardaginn 17. mars sl. Þokkaleg mæting var á fundinn í ár, en 23 félagar voru mættir að þessu sinni.
Formaður FKM Bára Einarsdóttir fór yfir starfsemi síðasta árs sem hefur verið fjölbreytt. Fyrir utan hefðbundna flugviðburði, þá var sett olíumöl í heimkeyrsluna, grasíð í kringum skýlin var snyrt og akstursleiðir málaðar. Sett var upp ný veðurstöð, klúbbvélinni breytti fyrir mogas (95 oct) og fleira gert. Gjaldkeri FKM Hjörtur Þór Hauksson kynnti reikninga klúbbsins, sem voru síðan samþykktir af fundarmönnum. Umsjónarmaður klúbbvélar fór yfir reikninga flugvélarinnar TF-RJC og greindi frá rekstri hennar sem virðist í góðum farvegi. Framundan er að kaupa nýjan prop á vélina fyrir sumarið.
Samþykkt var að halda árgjöldum óbreyttum.
Ný stjórn FKM er nú skipuð sem hér segir:
Formaður |
Bára Einarsdóttir |
Gjaldkeri |
Hjörtur þór Hauksson |
Ritari |
Valdimar Einarsson |
Meðstjórnandi |
Halldór Jónsson |
Meðstjórnandi |
Sigurjón Valsson |
Varamaður |
Einar Páll Einarsson |
Varamaður |
Jamil Allansson |
Fundargerð aðalafundar er hægt að lesa í heild sinni með því að smella hér: Sækja fundargerð 2018