Góðan dag ,
Það er venja að reyna að hafa klúbbvélina okkar ávalt staðsetta á stórum flugmótum eins og Melgerðismelum, Hellu og Múlakoti. Við höfum því reynt að taka hana frá og merkja í Goboko að vél sé á viðkomandi flugmóti. Ef einhver vill taka að sér að koma vélinni á staðinn og aftur heim þá er gott að hafa samband við Guðmund sem er umsjónarmaður vélarinnar. Þrátt fyrir að vélin sé frátekin þá er hún laus fyrir alla klúbbfélaga á þessum mótum en gott er að bóka sig samt á vélina í goboko kerfinu. Bókun ykkar birtist eins og biðfærsla og er merkt með rauðu.
Vélin er einnig ávalt frátekin frá 20:00 til 23:00 á fimmtudagskvöldum til að tryggja að hún sé á staðnum. Klúbbmeðlimir geta flogið henni að vild á þeim tíma en reyna samt að hafa túrana stutta svo fleiri komist að. það er ekki nauðsynlegt að bóka sig í goboko á þessum kvöldum.
Einnig er rétt að árétta að við viljum tryggja gott samstarf við nærliggjandi íbúa og þess vegna eru flugtök eða lendingaræfingar á Tungubökkum ekki leyfileg eftir kl. 22:30 og til 07:00 á morgnana.
Muna svo að skilja vel við vélina, þrífa flugur af rúðum og vængbrúnum og annan áberandi skít!
Formaður.
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|