Góðan dag ,
Sunnudagskvöldið 23. apríl og mánudaginn 24. apríl verður haldið upprifjunarnámsskeið á vegum FKM og hefjast umræður klukkan 19:30 bæði kvöldin.
Meðal efnis er uppsetning á nýju flug plan kerfi ISAVIA. Þeir sem hafa ekki nú þegar orðið sér úti um aðganga eru hvattir til að gera það á eftirfarandi vefslóð: https://www.isavia.is/fyrirtaekid/c-forflugsupplysingar/flugaaetlun-icao/saekja-um-adgang
Athugið að aðgangur er aðeins veittur á virkum dögum á skrifstofutíma þannig að best er að sækja um fyrir helgi.
Annað efni eru umræður um hvað þarf að hafa í huga þegar farið er að fljúga eftir nokkurt hlé.
Stjórnandi umræðunnar er Sigurjón Valsson. Vonast til að sjá sem flest ykkar á þessari upprifjun.
Kaffi og veitingar á staðnum.
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|