Góðan dag ,
Nú hellist haustið yfir og dagsljósið farið að stytta í annan endann, þannig að nú er komið að okkar síðasta fimmtudagskaffi þetta sumarið. TF-CUP ætlar að enda sumarið hjá okkur annað kvöld kl. 19:30.
Næsti dagskrárliður okkar verður laugardaginn 9. október. Þar sem klúbburinn á 40 ára afmæli á þessu ári þá ætlum við að vera með opið hús (fly-in) frá kl. 12 - 16.
Síðan um kvöldið ætlum við að borða saman og fagna afmæli og vetri. Sigurvegari sumarsins í lendingakeppni fær afhentan Tynes bikarinn í fyrsta sinn og margt fleira. Endilega taka daginn/kvöldið frá. Nánari dagskrá og matseðill verður send út innan skamms.
Hægt er að byrja strax að skrá sig í kvöldverðinn með því að senda póst á fkm@fkm.is (verð per mann kr. 5.500)
Formaður.
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|