Góðan dag ,
Covid hefur sett stórt strik í starfssemi okkar í sumar og virðist ekkert lát vera á því.
Fimmtudagskaffið okkar hefur verið inn og út en nú er svo komið að við ætlum að láta gott heita núna og setja það í vetrardvalann sinn. Leiðinlegt að hafa ekki náð að halda eitt gott slútt-kaffi fyrir veturinn.
Seinni hluti lendingakeppninnar okkar hefur heldur ekki náðst, bæði sökum Covid og líka sökum veðurs og manneklu, þannig að allt hjálpast þar að eða þannig!
Bensínmálin okkar eru aftur komin í ógöngur og við vitum hreinlega ekki hvenær við fáum áfyllingu en unnið er að lausn málsins.
Okkar hefðbundni haustfagnaður fellur niður vegna Covid, en við sjáum til hvernig mál þróast og hugsanlega sameinum við þetta í Jólafagnaðinum sem við stefnum á seinni hluta í Nóvember, en meira um það síðar.
Klúbbvélin er komin úr skoðun þar sem nú var skipt um Vacumdælu og einn Cylinder.
Ég vil biðja þau/þá sem eru að fljúga um að spritta sig vel og setja líka á stýrið og throttluna.
Flugkveðjur
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|