Góðan dag ,
Í ljósi þess veirufjandinn er að sækja í sig veðrið, og að yfirvöld hafa á ný hert umgengisreglur vegna Covid, þá teljum við ekki fært að tryggja tveggja metra regluna í húsakynnum klúbbsins á Tungubökkum. Við ætlum því að sýna ábyrgð og draga aðeins úr gleðinni þangað til við getum með góðri samvisku og í þökk yfirvalda opnað klúbbhúsið á ný.
Það verður því ekkert fimmtudagskaffi um sinn eða þangað til við setjum inn viðburð á Facebook þess efnis.
Seinni hluti Lendingarkeppninnar sem vera átti 8. ágúst (laugardag) verður frestað um óákveðinn tíma.
Klúbbvélin er enn opin félagsmönnum til notkunar en nú sem aldrei fyrr viljum við brýna fyrir öllum að nota spritt fyrir og eftir flug. Hugsum ekki bara um okkur sjálf heldur líka um fólkið í kring um okkar og þó svo að við ætlum ekki að hugsa um okkur sjálf, hugsum þá samt um fólkið í kringum okkur.
Formaður
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|