Góðan dag og gleðilegt sumar.
þar sem sumarið í þetta sinn fer af stað með undarlegra sniði en áður, þá langar okkur í stjórn að senda nokkrar línur til þín og útskýra hvað er að gerast á bak við tjöldin.
Bensínmál
Af bensínmálum er það að frétta að nú er tankurinn tómur eina ferðina enn. Það hefur reynst erfitt að fá 98 Octan hreint bensín frá olíufélögunum og því höfum við bruðgðið á það ráð að fara með tank á kerru upp á næstu bensínstöð og fylla þannig sjálf á tankinn okkar, þetta er mjög tímafrekt verkefni og alls ekki það sem við eigum að búa við. Olís er núna að safna saman undirskriftum vegna sérpöntunar á bensíni og skýrist það mál vonandi fljótlega.
Tankurinn okkar er auk þess eitthvað laskaður og tekur því ekki það magn af bensíni sem hann á að ráða við, en við ætlum að athuga hvort ekki sé hægt að finna út úr því máli á næstu dögum.
Á meðan þetta bensínástand varir, þá viljum við biðla til þeirra sem fljúga vélinni að skila henni ekki tómri, en gæta þess að það sé a.m.k. 1 klst eftir af eldsneyti svo hægt sé að fara til Rvk og tanka þar. Muna svo líka að spritta hendur og snertifleti í vélinni, fyrir og eftir flug.
Fimmtudagskaffið
Sumardagskráin okkar ætti að vera byrjuð samkvæmt þeirri áætlun sem við ætluðum að kynna á aðalfundi okkar í mars. Eftir 5. maí breytist samkomubannið í 50 manns, þannig að við ætlum að opna fyrir fimmtudagskaffið frá 7. maí. Kaffiðkvöldið verður þó með breyttu sniði til að byrja með. Húsið verður opið og heitt á könnunni, en engin auglýst dagskrá á Facebook og þeir koma sem geta og vilja en passa bara upp á 2ja metra regluna.
Aðalfundur
Það sama á við um aðalfundin en eftir 5. maí ættum við að geta haldið fundinn svo framarlega sem við höldum 2 metrunum. Við vinnum að því að leysa þetta og auglýsum nánar á næstu dögum nýja dagsetningu á aðalfundinn.
Bestu kveðjur
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|