Góðan dag ,
Því miður kemur það alltof oft fyrir að umgengni um klúbbvélina okkar er ábótavant. Nýjasta dæmið er í gær þegar vélinni er skilað með olíurák niður vélarhlífina. þetta er umgengni sem við þolum ekki.
Þegar flugmaður kemur að vélinni á hann að ganga úr skugga um að vélinni hafi verið skilað hreinni og í lagi. Ef eitthvað er ábótavant þá skal það tilkynnt á fkm@fkm.is. Einnig er lítið mál að líta í bókina í vélinni og sjá hver var á henni síðast. Þetta er ekki einkamál stjórnar heldur varðar þetta okkur öll. Skilum vélinni eins og við viljum koma að henni sjálf.
Eftir flug skal vélinni skilað hreinni að innan sem utan. Hreinsa olíusmit og flugur eins og kostur er. Ekki skilja eftir rusl inni í vélinni og ef það er gras á gólfi, þá skal ryksuga það upp.
Ef lent er á malarvelli, þá skal við lendingu reyna að halda snúning á mótor í lágmarki. Á stæði skal ekki snúa vélinni við á háum snúningi, heldur drepa á og snúa henni með handafli. Þegar vélin er sett í gang skal halda snúningi sem lægstum og leyfa vélinni að komast af stað áður en bætt er í snúning. Í flugtaksbruni skal bæta jafn og þétt við snúning þangað til vélin er komin á smá ferð og gefa þá fullt afl. Bannað er að keyra upp mótor á malarvöllum!
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|