Góðan dag ,
Að marggefnu tilefni þá eru hér punktar um umgengni við bensíndæluna okkar á Tungubökkum.
Hengilásinn á slönguhúsinu hefur reynst sumum erfiður viðureignar sem oft hefur endað með því að lykillinn er brotinn í lásnum. Það er hægt að komast hjá þessu með réttum vinnubrögðum. Hér eru nokkrir punktar.
1. Hita lásinn í heitum lófanum.
2. Setja lykilinn í munninn í smá tíma.
3. Blása heitu lofti í skráargatið.
4. Nota lásasprey (ætti að vera staðalbúnaður í flugtöskunni).
5. Alls ekki að nota átak til að opna lásinn, það á ekki að þurfa.
Þó það ætti að vera öllum ljóst þá skal það samt sagt hér að ALLS EKKI NOTA KVEIKJARA til að hita lásinn!!
Einnig skal bent á það að þegar slangan er höluð inn með mótórdrifinu, þá skal gæta þess að fara varlega síðustu sentimetrana. Það kom fyrir að einhver fór full geist og braut dæluhausinn.
Bensíndælan og allur búnaður í kringum hana er eign FKM sem ber því allan kostnað af rekstri og viðhaldi dælunnnar og búnaði í kringum hana.
Flugkveðja frá stjórninni
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|