Góðan dag ,
Okkar stærsti viðburður, Wings´n Wheels verður haldinn á laugardaginn 25. ágúst. Eins og venjulega þurfum við allar hendur á dekk til að létta verkið og gera daginn ánægjulegann fyrir alla. Þeir sem geta lagt hönd á plóg eru beðnir að melda sig á fkm@fkm.is eða skrifa sig á lista sem liggur frammi í klúbbhúsinu í fimmtudagskaffinu okkar annað kvöld.
Öryggis vinur okkar hann Kári Guðbjörnsson hefur fengið athugasemdir frá þeim sem eru ekki á Facebook um að þeir séu að missa af öryggisfundunum. Okkur þykir það miður enda á enginn að missa af slíkum fundum. Kári óskar eftir að því sé komið á framfæri að þeir sem vilja vera á póstlista hjá honum geta sent honum beiðni um slíkt á netfangið kari.gudbjornsson@samgongustofa.is
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|