Góðan dag ,
Nú mun Flugmálafélagið halda sína árlegu flugsýningu á BIRK þann 2. Júní og hefst sýningin kl. 12:00 og stendur til kl. 16:00
Okkur í FKM langar að fjölmenna með vélar okkar á sýninguna og sýna gestum hvað starfið okkar er öflugt. Við erum búin að tala við sýningarhaldara og fáum að vera með okkar flota á sér svæði þar sem við munum flagga klúbbfánanum okkar og kynna klúbbstarfið.
Þeir vilja fá okkur öll í einu á svæðið til að auðveldara sé að koma okkur saman. Hugmyndin er að hittast á Tungubökkum kl. 9:00 á laugardagsmorgun, gera klárt og draga út. Fara svo í síðasta lagi um 10:00 í bæinn. Ekki verra að vera búnir að fægja og bóna og búa jafnvel til miða, með upplýsingum um vélina, til að hafa í glugganum.
Við þurfum að fá að vita fyrir lok miðvikudags hverjir ætla að mæta með vélar svo hægt sé að skipuleggja svæðið. Vinsamlega sendið póst á fkm@fkm.is
Hér er hlekkur á heimasíðu sýningarinnar sem þið megið deila áfram: http://www.reykjavikairshow.is
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|