Góðan dag ,
Aðalfundur FKM verður haldinn í klúbbhúsinu á Tungubökkum laugardaginn 18. mars og hefst klukkan 10:00.
Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Lagabreytingar:
Eftirfarandi tillaga að lagabreytingu liggur fyrir fundinum: 4 grein laga félagsins hljóðar svo:
a) "Allir áhugamenn um flug sem greiða inntökugjald og árgjald til félagsins eru fullgildir félagar og hafa sömu réttindi og skyldur.
b) "Stjórn skal samþykkja inngöngu nýrra félaga með fyrirvara um samþykki félagsfundar."
Skv. tillögu að lagabreytingu hljómar 4. grein svona eftir breytingu:
a) Fullgildir félagar geta einungis verið þeir einstaklingar sem greitt hafa inntöku- og árgjöld og eru skuldlausir við FKM á aðalfundi."
b) "Umráðamenn aðstöðu, á svæði FKM, skulu vera fullgildir félagar í FKM."
Heitt á könnunni og bakkelsi með morgunkaffinu :)
Flugkveðja
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|