|
Góðan dag ,
Laugardaginn 27. Apríl næstkomandi verður haldið afmæliskaffi í klúbbhúsinu á Tungubökkum í tilefni 80 ára afmælis TF-CUP.
Flugvélin flaug fyrst á þessum degi árið 1944, þá í þjónustu Ameríska hersins sem Piper L-4 en þær flugvélar voru notaðar, meðal annars, til að leiðbeina og stjórna stórskotaliði á vígvöllunum síðari heimsstyrjaldarinnar. CUP endaði herþjónustu sína í Evrópu og hefur á 80 árum komið víða við, meðal annars verið skráð í Sviss, Frakklandi og Bretlandi áður en hún kom til Íslands.
Núverandi eigandi vélarinnar, Gísli Sigurjónsson, ætlar að halda upp á afmælið og bíður upp á kaffi og afmæliskökur í klúbbhúsinu frá klukkan 15:00 laugardaginn 27. Apríl.
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|