Góðan dag ,
Nú er haustið komið, göngur og réttir eru um það bil að klárast víðast hvar á landinu og næturfrost er að verða daglegur gestur þegar við förum út á hverjum degi.
Þegar þessi árstími rennur upp, er eitt sem er jafn sjálfsagt og göngur og réttir - það er Haustfagnaður FKM!!
Við ætlum að fagna haustinu með kjötsúpu og öllu tilheyrandi laugardaginn 30. september klukkan 19:00. Heildarkostnaður er 5000 per mann - matur og allir drykkir innifaldir. Á Haustfagnaðinum ætlum við líka að veita verðlaun fyrir bestu frammistöðu í lendingarkeppnum sumarsins.
Vinsamlegast skráið ykkur á fkm@fkm.is eða í síma 8584286 fyrir lok dags fimmtudaginn 28. september.
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|