Góðir félagar,
Nú er komið að viðhaldi á klúbbhúsinu okkar á Tungubökkum. Þau sem hafa komið á Tungubakka nýlega hafa vafalítið veitt því athygli að það lekur með nokkrum gluggum og komin er móða á milli glerja á nokkrum stöðum. Við ætlum að skipta um allt gler í húsinu núna í sumar og við erum komin með hluta af glerjunum á staðinn.
Við óskum eftir sjálfboðaliðum til að hjálpa okkur að skipta um glerið í húsinu. Það er alls ekki skilyrði að vera hundvön að vinna svona vinnu. Það geta allir hjálpað og þetta verður skemmtilegur félagsskapur! Ef það er smiður eða smiðir í hópnum sem væru til í að taka að sér verkstjórn væri það ennþá betra.
Við ætlum að byrja núna um helgina, annað hvort laugardag eða sunnudag, fer eftir þáttöku. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Sigurjón formann í síma 8584286
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|