Hér er tilkynning frá vini okkar hjá Samgöngustofu, Kára Guðbjörns.
Vegna COVID 19 takmarkana hefur SGS gefið út undanþágu frá skírteinareglugerð (ESB) 1178/2011 í samræmi við tilmæli EASA til að leysa málin meðan núverandi ástand varir.
Í stað verklegra hæfniprófa verða áritanir í skírteinum, útgefnum af Samgöngustofu, framlengdar í fjóra mánuði í senn eftir bóklega upprifjun með prófdómara þar sem einnig skal farið yfir viðbrögð við hættu og neyðarástandi á viðkomandi flokk eða tegund.
Þegar prófdómari hefur ekki tök á að árita skírteini mun skírteinisdeild Samgöngustofu árita skírteinið að fenginni staðfestingu frá prófdómara um að skilyrði undanþágunnar hafi verið uppfyllt.
Í því tilfelli sem prófdómari áritar skírteini skal skírteinishafi senda skírteinadeild Samgöngustofu afrit af nýju árituninni ásamt afriti af prófdómaraheimild prófdómara á netfangið fcl@icetra.is
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Samgöngustofu.
https://www.samgongustofa.is/…/almenn-undanthaga-vegna-covi…
Kær kveðja,
Kári Guðbjörnsson
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.