Kæru félagsmenn/konur og velunnarar FKM
Þann 27. ágúst n.k. verður okkar árlega Wings & Wheels flughátíð á Tungubökkum. Þetta er okkar stærsti viðburður á árinu og stór hluti af bæjarhátíðinni "Í túninu heima" hjá Mosfellsbæ.
Á þessa hátíð okkar á Tungubökkum koma að jafnaði í kringum 2-3000 manns og það segir sig sjálft að skipulag og framkvæmd slíkrar hátíðar gerir sig ekki sjálft.
Við óskum því eftir ykkar aðstoð við hin ýmsu verkefni, s.s. umferðarstýringu, veitingasölu, vöfflubakstur og gæslu við flugbrautina og í kringum sýningartækin. Ef þú hefur áhuga á að hjálpa til og að vera hluti af okkar flottu hátíð, þá endilega láttu heyra í þér. Hægt er að melda sig á fkm@fkm.is
Hátíðin stendur frá kl. 12:00 til kl. 16:30 á laugardeginum 27. ágúst.
bestu kveðjur
Halldór Jónsson - formaður
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|