Kæru félagar
Nú er síðasta útkall fyrir stórhátíðina okkar, W&W sem haldin verður á Tungubökkum næstkomandi laugardag. Við óskuðum eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða okkur og kunnum þeim sem svörðu miklar þakkir fyrir.
Hins vegar verður að viðurkenna að það eru svolítið sár vonbrigði með að í 120 manna klúbbi skuli ekki fást nema 4 sjálfboðaliðar!!
Við óskum því auðmjúklega enn og aftur eftir því að félagar skoði það hjá sér mjög alvarlega hvort þeir eigi ekki einhverja stund aflögu á laugardag til að aðstoða okkur. Þetta þarf ekki að vera allur dagurinn, við þiggjum alla aðstoð.
Áhugasamir geta sent póst á fkm@fkm.is með eftirfarandi upplýsingum:
- Nafn og sími
- Hvaða tími hentar ykkur
- Hversu lengi þið getið verið.
Bestu kveðjur
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|