Góðan dag ,
Wings & Wheels 26. ágúst
Nú fer að líða að stærstu hátíð sumarsins á Tungubökkum sem er Wings & Wheels og verður haldin þann 26. ágúst kl. 12 - 17. Hátíðin er haldin í sömu viku og „Í túninu heima“ og er orðin einn af stærstu viðburðum þessarar viku í Mosfellsbæ. Það er mikil vinna að halda vel utan um svona flughátíð til að allt fari vel fram og til að tryggja fyllsta öryggis.
Við leitum því til ykkar félagar með alla þá aðstoð sem hægt er að fá frá ykkur.
Við þurfum að stýra umferð bíla niður á bílastæðið sem verður á litlu flugbrautinni. Það þarfa að stýra umferð sýningargripa (dráttarvéla, fornbíla, cruesera o.fl.) inn á sýningarsvæðið, það þarf að manna sjoppuna okkar, vakta flugvélar, vakta línuna við flugvöllinn og tryggja öryggi í nánd flugumferðar.
Þeir sem geta lagt hönd á plóg þennan dag eru vinsamlega beðnir um að láta vita sem allra fyrst á netfangið okkar fkm@fkm.is. Um kvöldið munum við bjóða öllum starfsmönnum hátíðarinnar upp á veglega grillveislu.
Bensínmál
Eins og flestir hafa líklega rekið sig á, þá eru bensínmál á vellinum í smá „limbói“. Olís ákvað að hætta að bjóða upp á 100LL bensín og óvissa skapaðist um framtíð bensíndælunnar okkar. Við höfum átt í viðræðum við Olís og fleiri um nýjar lausnir en sökum sumarfría þá hefur þetta mál dregist og er beðist velvirðingar á því. Það er þó ljóst að við munum skipta yfir í bílabensín á dælunni, en hvaðan það kemur er ekki komið á hreint. Við látum vita um leið og málið leysist.
Á meðan höfum við verið með 100LL bensín á bláum tunnum í skýli 5, og það bensín er eingöngu ætlað á TF-RJC.
Að gefnu tilefni er vert að minnast á að ef menn þurfa að tanka á vélina utan heimavallar, þá þurfa þeir að greiða það bensín sjálfir og fá það síðan endurgreitt hjá umsjónarmanni vélarinnar Daníel Finnssyni (daniel@karanes.is) gegn framvísun nótu.
Breyting á RJC
Þar sem nú er ljóst að við munum skipta yfir í bílabensín á tanknum okkar á Tungubökkum, þá var ráðist í breytingar á klúbbvélinni þannig að hún er núna klár fyrir bílabensín. Athugið að hún gengur bæði á bílabensíni og 100LL.
Umbreytingar á svæðinu
Svæðið í kringum flugskýlin hefur tekið miklum breytingum síðustu daga og vikur. Búið er að leggja bundið slitlag á allan vegaspottann niður að skýli 6, auk bílastæða. Akbrautir fyrir framan skýlin (nr 3 til 6) hafa verið merkt og búið að leggja þökur í kringum skýli 5 og fyrir framan stóra bílastæðið. Við höfum mikinn metnað til að láta umhverfið okkar líta sem best út og viljum hvetja félagsmenn til að hjálpa okkur að halda svæðinu snyrtilegu. Það er ekki síður mikilvægt að taka til inni í skýlunum, passa upp á að olía liggi ekki á gólfum og ganga frá öllum olíubrúsum til förgunar.
Ný veðurstöð
Það hefur verið sett upp ný veðurstöð sem staðsett er á klúbbhúsinu. Auk þess að mæla vindraða og vindátt, þá sýnir hún, hitastig, loftþrýsting, rakastig og úrkomu. Hægt er að sjá upplýsingar frá stöðinni á netinu með því að smella á þessa slóð: http://holfuy.com/en/data/553
Einnig er hægt að sækja App í símann bæði fyrir Android og iPhone. Þetta App heitir einfaldlega Holfuy. Í Appinu er hægt safna stöðvum í „favorits“ en það eru nú komnar upp 7 svona stöðvar á Íslandi (hægt að sjá lista á http://holfuy.com og velja þar „Stations“ , síðan „Iceland“ og þá er hægt að velja hvaða stöð maður vill skoða.
Bestu flugkveðjur til ykkar og eigið áfram ánægjulegt flugsumar.
Stjórn FKM
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|