Kæri félagsmaður
,
Jólafagnaður FKM verður haldinn föstudaginn 9. desember næstkomandi. Hátíðarhöldin hefjast klukkan 19:00 í klúbbhúsinu á Tungubökkum og verður þar boðið upp á þokkalega jólalegan mat og viðeigandi drykki. Verð er 4500 kr á manninn.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi miðvikudaginn 7. desember til Einars Páls S:897-7676.
Fljúgandi jólakveðja
Stjórnin
P.S. Vinsamlega komið þessum skilaboðum áfram til klúbbfélaga sem þið þekkið til, ef vera skyldi að einhver fái ekki þennan póst.
|