Góðan dag ,
Nú eru aðeins 8 dagar í stærsta viðburð okkar félagsmanna á Tungubökkum sem er Wings'n Wheels 2016. Á síðasta ári náði gestakoma nýjum hæðum og fór fram úr björtustu vonum. það er mikið verk að stýra slíkum viðburði og sjá til þess að allt fari vel fram og verði klúbbnum okkar til sóma. Búið er að stofna Facebook síðu með upplýsingum um viðburðinn og má sjá hér: www.facebook.com/tungubakkarwingsandwheels
Margar hendur vinna létt verk og nú leitum við til þín með aðstoð. Okkar vantar fólk í umferðarstjórnun, gæslu sýningarvéla/tæja og við völlin auk veitingasölu svo eitthvað sé nefnt. Ef þú félagsmaður góður átt lausa stund til að aðstoða og taka þátt í frábærri skemmtun, þá hafðu samband við:
Sigurjón 858-4286 (sigurjon2011@gmail.com) eða
Halldór 898-0906 (halldor1964@gmail.com)
Einnig geta menn tilkynnt sig í gegnum Facebook síðu klúbbsins eða viðburðarins.
Með bestu kveðju,
Stjórnin
Að degi loknum mun öllum sjálfboðaliðum verða boðið upp á bjór og grill til að fagna vel unnu starfi dagsins.
|