Flugvöllurinn á Tungubökkum er einkaflugvöllur Flugklúbbs Mosfellsbæjar. Afnot að honum er einungis heimil félögum í Flugklúbbis Mosfellsbæjar og gestum þeirra. Gestum flugvallarins ber að kynna sér ástand flugvallarins og þeirra aðstæðna sem þar ríkja áður en lent er á flugvellinum (Prior Permission Required, PPR).
Í gegnum tíðina hefur flugklúbburinn átt flugvél til afnota fyrir þá félagsmenn sem ekki eiga eigin flugvél eða fyrir þá sem þurfa á aukaflugvél að halda.
Þessar vélar hafa í gegnum árin verið:
Piper J-3 Cub - TF-GEV (nú TF-CUP).
Piper PA-18 Super Cub TF-FKM.
Bellanca Citabria TF-TWA (seinna TF-MOS).
Cessna C-170 TF-MOS.
Núverandi klúbbvél er Cessna C-170 TF-GMG.
Nánari umfjöllun um klúbbflugvélar FKM er að finna á undirsíðunni "Klúbbflugvél FKM"
Félagslíf klúbbsins samanstendur af ýmsum uppákomum árið um kring. Haldnar eru tvær lendingarkeppnir á vegum flugklúbbsins á hverju ári, svokallaðar Silfur-Jodel lendingakeppnir þar sem keppt er um Silfur-Jodel bikarinn. Þessar keppnir fara venjulega fram fyrsta fimmtudagskvöld í júní fyrri umferð og svo seinni umferðin fyrsta laugardag í september.
Frá lokum maí þar til í byrjun september sjá eigendur flugvéla á flugvellinum um kaffi og meðlæti á hverju fimmtudagskvöldi. Þar koma félagsmenn sama, ræða um lífsins gagn og nauðsynjar og fljúga ef veður leyfir. Allir eru velkomnir á þessi kaffikvöld, jafnvel þó menn séu ekki félagar í klúbbnum. Íbúar Mosfellsbæjar hafa verið duglegir við að heimsækja okkur á fimmtudagskvöldum á sumrin.
Á veturna eru kaffikvöldin einnig haldin á fimmtudagskvöldum eins og á sumrin og þá yfirleitt um það bil einu sinni í mánuði. Þá eru gjarnan sýnd myndbönd eða verið með myndasýndingar frá atburðum sem félagsmenn hafa sótt. Á veturna eru líka haldnar nokkrar matarveislur fyrir félagsmenn, svo sem haustfagnaður, jólagleði, þorrablót, konukvöld og fleira í þeim dúr. Svo félagsstarf FKM er nokkuð líflegt.
Aðstaða FKM á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ er alveg einstaklega góð og skemmtileg. Enda er það ekki að ástæðulausu að oft er talað um að þar sé grasrót einkaflugs á Íslandi. Á Tungubökkum eru sjö flugskýli sem hafa að geyma tugi einstakra flugvéla og einnig er þar mjög gott klúbbhús sem notað er sem kaffistofa sem og samkomuhús til skemmtana og fundarhalda.
Flugklúbbur Mosfellsbæjar
Tungubakkaflugvelli
Pósthólf 2
270 Mosfellsbæ
Kennitala: 561085-0139
www.fkm.is
Netfang: fkm@fkm.is