sunnudagur 5 september 09 2010


TF-OIO - One Design


   Information in English below

Um flugvélina TF-OIO:

Flugvélin TF-OIO er heimasmíðuð Experimental listflugvél af gerðinni One Design. Eigandi og smiður vélarinnar er Hafsteinn Jónasson. Hafsteinn hefur undanfarin ár unnið að smíðinni sem er mjög langt komin í dag.

One Design er eins manns listflugvél sem er gríðarlega sterk í alla staði og á að vera án takmarka á G þoli. Skrokkur flugvélarinnar er grind byggð úr stálrörum, en vængurinn er smíðaður úr timbri.
Mótorinn sem nú er nýkominn í vélina er 180+ hestafla Lycoming IO-360 með beinni innspýtingu og ýmsu góðgæti í.


Almennur fróðleikur um One Design flugvélar:

One Design er eins sætis einþekja sérhönnuð fyrir listflug, bæði til skemmtunar og fyrir keppni. Um árabil gnæfðu Pitts Special vélarnar yfir aðrar í listflugkeppnum. Hægt var að fá Pitts vélar fyrir hæfilegar upphæðir og þær voru samkeppnishæfar í öllum listfluggreinum. Þá komu einþekjurnar fram á sjónarsviðið.

Þær höfðu aflmikla hreyfla sem gerðu þeim kleift að fljúga langa lóðrétta ferla og leiftursnöggar veltur. Þar með urðu þær ráðandi gerð í listflugkeppnum. Þessar vélar höfðu mikla vinnuorku og gátu þolað háan þyngdarstuðul. Flugmenn elskuðu afköst og flugeiginleika einþekjanna og það gerðu dómararnir einnig. Þær flugu ekki einungis betur heldur sáust þær einnig betur og fengu betri einkunnir.

Þannig varð Pitts gerðin fljótlega úrelt sem keppnisvél þegar vélar eins og Extra, Sukhoi og Cap  gáfu flugmönnum sínum auðveldari aðgang að verðlaunapöllunum. Þessar vélar voru hinsvegar flestar mjög dýrar í innkaupum og varð það erfiður þröskuldur fyrir marga flugmenn. Það var mörgum þyrnir í augum að einungis efnaðir aðilar gátu verið samkeppnisfærir í listflugkeppnum. Farið var fram á úrbætur og Alþjóða listflugklúbburinn lagði við hlustirnar. Ræddar voru áætlanir um ódýrar en öflugar listflugvélar. Slíkar vélar myndu keppa í sérflokki og þar með yrði það undir flugmönnum komið hvernig þeir stæðu sig gagnvart hver öðrum frekar en eftir mismunandi eiginleikum flugvélanna. Þannig kom fram hugmyndin um "One Design" eða eina hönnum á vél. Spurningin var þá vitaskuld: Hvaða hönnun?

Maður að nafni Dan Rihn tókst á við þetta verkefni. Hann hafði í langa tíð verið tengdur listflugi og var vel þekktur bæði sem flugmaður og hönnuður. Niðurstaða hans var DR107 eins hreyfils einþekjan. Hún var búin frábærum eiginleikum til listflugs, en um leið var kostnaðurinn sambærilegur við aðrar heimasmíðaðar flugvélar. Endanlega festist nafnið "One Design" við vélina og IAC mótaði keppnisreglur fyrir tegundina.

Fyrsta vélin var smíðuð og reynsluflogið af mörgum af fremstu listflugmönnum heims. Reynslan af þessum prófunum var síðan nýtt og hönnunin bætt Þar til lokateikningar voru frágengnar og hönnunin síðan markaðsett í gegnum fyrirtækið Aircraft Spruce and Specialty Company.


     Information in English:

History of TF-OIO:

 Hafsteinn Jónasson is building this airplane.


A brief history of One Design aircraft:

The One Design is a single seat aerobatic monoplane designed for aerobatics, both recreational and competition. For years the Pitts Special dominated the competition scene. A Pitts could be acquired or built for a reasonable amount of money and was competitive in all categories. Along came the mighty monoplane.

With their high horsepower engines to give them tall vertical lines, and their blinding fast roll rates, the mono planes started taking over as king of the hill in the competition world. These aircraft maintained high levels of energy and could sustain very high G-Loads. Pilots loved the way the mono planes performed and more importantly, so did the judges. Not only did it perform better but with its larger wing span and straight leading edges, it showed better giving the mono plane pilots higher scores.

Soon the Pitts, which had dominated competition for so long, was now considered obsolete. Airplanes like the Extra, Sukoui, and the CAP were taking their pilots to the top of the medal podium. This created a problem. The cost of these new high tech mono planes was cost prohibitive to many pilots. These aircraft could cost in excess of $200,000 US dollars.

Would be and former competitors were discouraged with the fact that aerobatic competition was now something only person with a very healthy income could participate in. A cry was sent out and the International Aerobatic Club listened. Plans for a low cost high performance aircraft were discussed. It would have its own class of competition where all airplanes were equal and it would be up to the pilots to out perform each other rather than someone’s superior aircraft. Hence the concept of a One Design competition was born. Question was, what design would be used?

A gentleman by the name of Dan Rihn stepped up to the challenge. Dan had been involved in the aerobatic community for years and was well respected as a pilot and an aircraft designer. He designed the DR107 single place monoplane. This aircraft had great performance and yet it was in par with other homebuilts that were on the market when it came down to cost. Dan kicked around a few names for the new aircraft but since it was designed for the One Design Class the name stuck. The IAC now had the aircraft they were looking for. Rules were drawn up for the class.

The One Design proto type was built and rigorously tested by many of todays top aerobatic pilots. Routines from basic to unlimited aerobatics were flown as the One Design proved itself. Inputs from the pilots were taken and improvements were made. Final plans were then drawn and are marketed by Aircraft Spruce and Specialty Company.


TF-OIO - Tæknilegar upplýsingar / TF-OIO Specs:

Tegund / Type:

One Design

Árgerð / Year of manufacture:

2007...???

Framleiðslu númer / Construction number: 

Fyrri skráningar / Previous identities:

None / Engin

Flugmaður / Pilot:

1

Farþegar / Passengers:

0

Vænghaf / Wing span:

?? meters

Lengd / Length:

?? meters

Hreyfill / Engine:

180 hp Lycoming IO-360

Farflugshraði / Cruise speed:

?? mílur / MPH

Eigandi / Owner:

Hafsteinn Jónasson


Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða fleiri myndir af flugvélinni TF-OIO
Click on the picture to see a photogallery of this aircraft