sunnudagur 5 september 09 2010


TF-MRS - Cessna 140


   Information in English below

Um flugvélina TF-MRS:

Flugvélin TF-MRS var smíðuð árið 1946 en var ekki flutt til Íslands fyrr en árið 1986 og var skráð 11. júlí það ár sem eign Hilmars Fossdals. Árið eftir komst hún í eigu Einars Guðmundssonar sem átti hana til ársins 2002 er hún komst í eigu Ketils Oddsonar og hefur hún verið á Tungubökkum síðan.


Almennur fróðleikur um Cessna 140 flugvélar:

Cessna Aircraft Company var stofnað af Clyde Cessna árið 1927 í Wichita, Kansas. Clyde Cessna var frumkvöðul í flugi á ýmsan máta. Þegar hann stofnaði fyrirtæki sitt, þá ætlaði hann eingöngu að framleiða einþekjur, og verður það að teljast virkilega framsækinn hugsun árið 1927, þegar nánast allar flugvélar voru tvíþekjur. Fram að síðari heimsstyrjöldinni framleiddi Cessna nokkrar flugvélategundir, en engin þeirra náði vinsældum. Í síðari heimsstyrjöldinni framleiddi Cessna tveggja hreyfla þjálfunarvél fyrir herinn, auk þess að smíða íhluti í flugvélar annarra flugvélaframleiðanda.

Þegar sá fram á lok styrjaldarinnar, fóru flugvélaframleiðendur að velta fyrir sér framtíðinni, og virtust allir vera sammála um að gífurleg eftirspurn yrði eftir flugvélum þegar allir flugmennirnir sem þjálfaðir voru fyrir herinn kæmu heim, auk þess sem menn sáu fyrir sér að margir af þeim sem voru í hernum myndu fá sér flugvélar þegar þeir kæmu heim. Flugvélaframleiðendur voru með stjörnur í augunum og sá fyrir sér markað fyrir tugþúsundir flugvéla og allir ætluðu sér skerf af kökunni. Því miður fyrir marga þeirra, varð ekkert úr þessari sprengju.

Cessna vildi taka þátt í þessu kapphlaupi, en ólíkt öðrum framleiðendum sem flestir höfðu framleitt einkaflugvélar fyrir stríð, þá áttu þeir enga flugvélartegund sem hentaði þessum markaði. Þeir hönnuðu nýja flugvél fyrir þennan markað á mettíma, sem þeir kölluðu Cessna C-140. Það sem vakti athygli strax þegar vélin kom fram hvað hún var að sumu leiti lík vél sem heitir Luscombe 8 Silvaire, en hún hafði notið nokkurrar vinsældar fyrir stríð. Vafalítið hafa hönnuðir Cessna haft þessa vél til hliðsjónar þegar þeir hönnuðu sína flugvél.

Cessna C-140 fór í framleiðslu árið 1946, og seldist nokkuð vel. Þegar C-140 kom fyrst fram, var vélin með dúkklædda vængi, en það breyttist árið 1949 þegar C-140A kom fram, en þá voru vængirnir orðnir ál klæddir með einni vængstífu líkt og er á C-150. Cessna C-140 var í framleiðslu til ársins 1950, og þegar framleiðslunni lauk hafði verksmiðjan smíðað um það bil 7650 stykki

Samtals hafa verið skráðar sjö Cessna C-140 á Íslandi. Sú fyrsta var skráð árið 1960 og fékk stafina TF-AIR.


     Information in English:

The history of TF-MRS:

This aircraft was produced in 1946 and was imported to Iceland in 1986, being registered on the 11th of July to Mr. Hilmar Fossdal.  A year later a change of ownership to Mr. Einar Guðmundsson was reported.  In 2002 the aircraft was bought by the present owner, Mr. Ketill Oddson, and has been stationed at Tungubakkar  since. 


A brief history of Cessna 140 aircraft:

The Cessna Aircraft Company was founded by Clyde Cessna in 1927 and has been located in Wichita, Kansas ever since.  Mr. Cessna was a noted pioneer of aviation in Americana and had a clear vision on the future when he founded the company.  He was convinced that the future of aircraft would involve monoplanes, which was quite noteworthy in 1927 when biplanes ruled the skies.  Until the start of the second world war, Cessna produced a few aircraft types, but none of them was really successful.  During the war, Cessna produced a twin engine trainer for the Air Force but also produced parts for other aircraft manufacturers for use on their aircraft.

With the end of the war in sight, aircraft manufacturers tried to predict the  what the future might hold.  All of them seemed to come to the same conclusion.  All of them predicted light aircraft to sell in the tens of thousands when all of the pilots trained to fly for the Air Force returned home along with all the GI´s who also would learn to fly.  As some of the manufacturers found out to their cost, nothing of the sort happend!

Cessna wanted to join the bandwagon, but unlike a lot of other manufacturers, the company didn´t have a pre-war design suited to the market.  The company acted quickly, and started production of the C-140 in 1946.  What became apparent when the new model was introduced was the subtle likeness to the pre-war Luscombe 8 Silvaire.  While it is certainly not a direct copy, I think it is safe to say that the Cessna designers were influenced by the Luscombe design.

When the production of the C-140 started in 1946, it had fabric covered wings and continued in this form until 1949, when an all metal wing was introduced.  The C-140 continued in production until 1950.  When the production ended, about 7650 examples had been produced.

A total of seven C-140 have been registered in Iceland over the years, with the first one being registered in 1960 as TF-AIR. 


TF-MRS - Tæknilegar upplýsingar / TF-MRS Specs:

Tegund / Type:

Cessna C-140

Árgerð / Year of manufacture:

1946

Framleiðslu númer / Construction number: 

10553

Fyrri skráningar / Previous identities:

NC-76156 / N-76156

Flugmaður / Pilot:

1

Farþegar / Passengers:

1

Vænghaf / Wing span:

10,25 meters

Lengd / Length:

6,6 meters

Hreyfill / Engine:

85 hp Continental C-85

Farflugshraði / Cruise speed:

95 mílur / MPH

Eigandi / Owner:

Ketill Oddsson


Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða fleiri myndir af flugvélinni TF-MRS
Click on the picture to see a photogallery of this aircraft