sunnudagur 5 september 09 2010


TF-FHR - Cessna R172K Hawk XP


   Information in English below

Um flugvélina TF-FHR:

Flugvélin sem hér um ræðir var framleidd árið 1977 og kom til Íslands 1988. Var hún skráð sem TF-SJS 25. mars það ár í eign Sigurgeirs Sigmundssonar. Árið1989 var hún hjá Flugskóla Helga Jónssonar með skrásetninguna TF-FHR sem hún hefur haldið síðan. 1995 er hún leig til Jórvíkur hf. en er nú í eigu Halldórs Gíslasonar og staðsett á Tungubökkum.


Almennur fróðleikur um Cessna C-172 Skyhawk flugvélar:

Cessna flugvélaverksmiðjurnar flugu frumgerðinni af Cessna C-172 árið 1955. Þessi flugvél var þróuð útgáfa af fyrri vél frá Cessna, þ.e. C-170. Nánast eini munurinn á þessum tveimur gerðum í upphafi var að C-172 hafði nefhjól og aðra stélfleti. Fyrsta útlitsbreytingin var gerð árið 1960, þegar breytt var um lóðréttan stélflöt og aftursveigði stélflöturinn leit dagsinsljós. Árið 1963 var svo næsta stóra útlitsbreyting gerð á vélinni, þegar skrokkurinn fyrir aftan farþegarímið var lækkaður og settir gluggar sem ná nánast allan hringinn. Því má segja að árið 1963 hafi Skyhawk vélarnar verið komnar nokkurnvegin með það útlit sem þær eru með enn þann dag í dag.

Allt þar til árið 1967 voru Skyhawk flugvélar með Continental 0-300 hreyfil, en það ár kemur á markaðinn ný gerð sem var með Lycoming 0-320 hreyfli og hafa Skyhawk flugvélar notað ýmis afbrigði af Lycoming hreyflum alla tíð síðan. Frá 1977 til 1981 framleiddi Cessna öflugri gerð af Skyhawk sem gekk undir heitinu Hawk XP og var hún með Continental IO-360 195 hp hreyfli. Þessi gerð var talin vel hæf til nota á flotum þar sem uakið afl gerði hana mun hæfari en aflminni gerðirnar.

Skyhawk flugvélar voru framleiddar allt til ársins 1985, en það ár neyddust Cessna verksmiðjurnar til að hætta framleiðslu vélanna vegna lögsókna frá fjölskyldum fólks sem hafði slasast eða látist um borð í þessari gerð flugvéla. Árið 1996 hófst framleiðsla á Skyhawk aftur, eftir að gerðar höfðu verið breytingar á Amerískum lögum sem takmörkuðu mjög ábyrgð flugvélaverksmiðja á slysum á þeim flugvélum sem þeir framleiddu. Skyhawk er ennþá í framleiðslu þegar þetta er ritað.

Skyhawk flugvélarnar hafa notið gífurlegra vinsælda síðan þær komu fyrst fram á sjónarsviðið og hafa fleiri vélar af þessari tegund verið smíðaðar en af nokkurri annarri flugvél í sögu flugsins, eða meira en 43.000 eintök.   Til gamans má geta þess að þær vélar sem komast næst Skyhawk í framleiðslu eru báðar ættaðar frá Sovétríkjunum sálugu, en það eru Polikarpov PO-2 sem var framleidd í um það bil 40.000 eintökum og Ilyushin Il-2 Shturmovik sem var framleidd í um það bil 36.000 eintökum.

Skyhawk vélar hafa verið vinsælar meðal íslenskra einkaflugmanna, og var fyrsta slíka vélin flutt ný til landsins árið 1957 sem TF-BOB. Síðan þá hafa verið skráðar á Íslandi 58 Skyhawk flugvélar.


     Information in English:

The history of TF-FHR:

The Cessna Hawk XP knowk as TF-FHR was produced in 1977 and imported to Iceland in 1988. It was registered as TF-SJS on March 25 that year. In 1989 it was registered as TF-FHR wit the Helgi Jónsson flying school. It is now owned by Halldór Gíslason and stationed at Tungubakkar. 


A brief history of Cessna C-172 Skyhawk aircraft:

The Cessna factory first flew the prototype C-172 in 1955. The C-172 was a development of an earlier aircraft, the C-170, and initially the only difference between the two models was the nose landing gear and new angled tail surfaces of the C-172. The first cosmetic changes to appear on the new model were introduced in 1960 when the angled fin was replaced with a stylish new one with a sweep back. The next big change in the appearance of the aircraft came in 1963 when the fuselage behind the passenger cabin was lowered and wrap around windows introduced. The Cessna sales material from the time refers to this as the Omini Vision version! So, from 1963 onwards, the Skyhawk had got to the looks that are still present today.

From the start of production until 1967, the Skyhawk was powered by the Continental 0-300 engine. The model produced for the first time in 1967 had the Lycoming 0-320 as power plant, and since then all Skyhawks have used Lycomings of various horsepower as power plants. From 1977 to 1981 Cessna produced a version of the Skyhawk, called C-172K Hawk XP. If had a Continental IO-360 engine with 195 hp and a constant speed two bladed prop. It was often uses with floats, as it was so much more powerful that the standard models.

The Skyhawk was produced by Cessna until 1985, when prodution was stopped due to legal liability rulings in the US where relatives of people injured or killed in Cessna products could sue the company for high amounts of money. The production line was restarted in 1996 after a change in American law which severely reduced the liability of the manufacturer of light aircraft. The Cessna Skyhawk is still in production when this is written.

The Skyhawk has enjoyed a tremendous popularity since it was first introduced. To date about 43.000 examples have been built, making it the greatest produced aircraft of all time. For interest, it might be worth mentioning the second and third place for the most produced aircraft of all time, but both of these come from the former Soviet Union. In second place is the Polikarpov PO-2 biplane which was produced in approximately 40.000 examples. In third place is the Ilyushin Il-2 Shturmovik which was produced in 36.000 examples.

The Skyhawk has proven very popular with Icelandic pilots, and the first Skyhawk was imported new in 1957 getting the registration TF-BOB. Since then 58 Skyhawks have been registered in Iceland.


TF- FHR - Tæknilegar upplýsingar / TF-FHR - Specs:

Tegund / Type:

Cessna C-172K Hawk XP

Árgerð / Year of manufacture:

1977

Framleiðslu númer / Construction number: 

2054

Fyrri skráningar / Previous identities:

N7317K / TF-SLS

Flugmaður / Pilot:

1

Farþegar / Passengers:

3

Vænghaf / Wing span:

11 meters

Lengd / Length:

8,20 meters

Hreyfill / Engine:

195 hp Continental IO-360

Farflugshraði / Cruise speed:

141 mílur / MPH

Eigandi / Owner:

Halldór Gíslason


Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða fleiri myndir af flugvélinni TF-FHR
Click on the picture to see a photogallery of this aircraft