sunnudagur 5 september 09 2010


TF-KAF - Cessna 170B „Blær“


   Information in English below

Um flugvélina TF-KAF:

Flugvélinn TF-KAF var smíðuð árið 1952. Ekkert er á þessari stundu vitað um veru hennar í Bandaríkjunum. Hún er fyrst skráð á Íslandi þann 30. Júlí 1992 og hefur verið eign Flugklúbbsins Þyts síðan.


Almennur fróðleikur um Cessna 170 flugvélar:

Þegar Cessna hafði verið með C-140 á markaði í nokkurn tíma og sá að markaður var fyrir hendi, var ákveðið að smíða fjögurra sæta útgáfu af henni. Cessna C-170 kom á markaðinn árið 1948 og var smíðuð á sama hátt og C-140, nema hvað hún var tölvert stærri á alla kanta og með stærri hreyfil. Upphaflega C-170 var með málm skrokk og dúkklædda vængi með tvöföldum vængstífum, rétt eins og C-140. Árið 1949 var vængnum breytt í málmklæddan væng með einni vængstífu, rétt eins og gert var á C-140 á sama tíma. Við þessa breytingu varð til C-170A

Árið 1950 kom Cessna fram með nýja hönnun sem kölluð var Cessna Model 305. Þetta var flugvél sem hönnuð var í samvinnu við flugherinn til nota sem fljúgandi stjórnstöð yfir vígvelli. Cessna Model 305 var mikið endurhönnuð C-170, en notað sömu vængi og stél með nýrri skrokk miðju. Á Model 305 voru líka settir nýjir flapar á vélina, sem voru mun stærri en þeir sem fyrir voru og voru þessir nýju flapar af Fowler gerð. Þessi gerð vélarinnar fékk hernaðar skammstöfunina L-19 og seinna O-1 Bird dog. Þessar vélar urðu síðar mjög frægar í Víetnamstríðinu.

Árið 1952 ákveður Cessna síðan að setja sömu flapa á C-170 og hannaðir höfðu verið fyrir L-19 vélina. Við þessa breyting breyttist vélin í C-170B.

Cessna C-170B var framleidd til ársins 1956 þegar framleiðsla á C-172 tók við. Á tímabilinu 1948 til 1956 voru framleidd 5174 stykki. Einungis hafa verið skráðar fjórar vélar af gerðinni Cessna C-170 hér á landi, þar af þrjár eftir 1990.


     Information in English:

The history of TF-KAF:

TF-KAF was produced in 1952 and based in the U.S. until 1992. At this time nothing is known about it´s time in the States. It was first registered in Iceland on the 30th of July 1992 to Thytur flying club, and is still owned by them.


A brief history of Cessna 170 aircraft:

The first change to the basic design came in 1949, when the wing was changed to a metal clad one with a single wing strut on each side. With this change came a change in designation to C-170A.

In 1950, Cessna introduced a new product that had been developed for the Air Force as a Forward Air Control and reconnaissance aircraft. This was called the Model 305 by Cessna and was highly modified C-170. The wings of the C-170 were used but with a now Fowler type flap system and the tail of the C-170 was used as well married to a new fuselage center section. The Model 305 got the Air Force designator L-19 which was later changed to O-1 Bird Dog and went on to win fame in the Vietnam war.

In 1952, Cessna decided to take the flap system they had developed for the Model 305 and put it on a production 170, and thus was born the Cessna C-170B.

The Cessna 170B was produced until 1956 when the production of the C-172 took over. Over the period 1948 to 1956 Cessna produced 5174 examples. The C-170 has not enjoy a huge success in Iceland, with only four of them placed on the register, with three of them registered after 1990!


TF-KAF - Tæknilegar upplýsingar / TF-KAF Specs:

Tegund / Type:

Cessna C-170B

Árgerð / Year of manufacture:

1952

Framleiðslu númer / Construction number: 

20525

Fyrri skráningar / Previous identities:

Ekki þekktar? / Not known?

Flugmaður / Pilot:

1

Farþegar / Passengers:

3

Vænghaf / Wing span:

10,97 meters

Lengd / Length:

7,61 meters

Hreyfill / Engine:

145 hp Continental O-300

Farflugshraði / Cruise speed:

115 mílur / MPH

Eigandi / Owner:

Flugklúbburinn Þytur


Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða fleiri myndir af flugvélinni TF-KAF
Click on the picture to see a photogallery of this aircraft