sunnudagur 5 september 09 2010


TF-AKK - Piper PA-12 Super Cruiser „Stjáni“


   Information in English below

Um flugvélina TF-AKK:

TF-AKK var framleidd árið 1947 og var skráð í Bandaríkjunum sem NC-4400M þegar hún var ný. Þessi skráning bendir til þess að hún hafi verið notuð í einhvers konar atvinnuflugi (C í skráningunni þýddi Commercial á þeim tíma). Síðar var skráningu hennar breytt í N-4400M.
Því miður vitum við ekki meira um sögu vélarinnar í Bandaríkjunum.

Vélin var fyrst skráð á Íslandi þann 28. júlí 1988 sem eign Boga Þórhallssonar. Árið 1996 varð Geir Þorsteinsson eigandi vélarinnar. Árið 1998 flutti vélin upp á Tungubakka þegar Gunnar Pálsson var skráður eigandi hennar ásamt fleirum. Síðan þá hefur vélin búið á Tungubökkum.

 


Almennur fróðleikur um Piper PA-12 Super Cruiser flugvélar:

Sú vélartegund sem seinna fékk heitið Piper PA-12 Super Cruiser varð til árið 1939. Piper verksmiðjurnar ákváðu þá að gera J-3 Cub vélina vinsælli meðal flugrekenda í Bandaríkjunum með því að bæta þriðja sætinu í vélina. Vængir og stél voru í megin atriðum þau sömu og á gamla J-3 Cub, en nýr skrokkur var hannaður fyrir vélina. Skrokkurinn var byggður á sama hátt og á fyrri vélinni, en var breiðari til að koma þriðja sætinu fyrir. Sætafyrirkomulag var þannig að flugmaðurinn sat fremst og fyrir aftan var bekkur fyrir tvo. Hægt var að hafa stjórntæki við aftara sætið til að hægt væri að nota vélina til flugkennslu. Þetta nýja afbrigði fékk heitið Piper J-5 Cub Cruiser og flaug fyrst í desember árið 1939  Vélin fór í framleiðslu sem J-5A árið 1940 með 75 hestafla Continental A-75 hreyfli sem var opinn eins og á J-3 vélinni. Fyrsta stóra breytingin sem gerð var á vélinni var gerð árið 1942 þegar settur var í hana 100 hestafla Lycoming O-235 hreyfill í lokaðri vélarhlíf, en ekki voru framleiddar margar vélar af þeirri gerð þar sem síðari heimsstyrjöldin varð til þess að hætt var að framleiða borgaralegar flugvélar. Samtals voru framleiddar 1404 J-5 flugvélar til borgaralegra nota áður en stríðið braust út.
Eftir að styrjöldin braust út fór Bandaríski flotinn að sýna vélinni áhuga sem sjúkraflugvél. Til þess að vélin gæti uppfyllt þetta nýja verkefni þurfti að breyta henni. Breytingin var í því fólgin að toppurinn á farþegarýminu fyrir aftan vængi var settur á lamir þannig að hægt væri að smeigja sjúklingi á börum inn í farþegarýmið með höfuðið á undan!  Þannig varð til Piper HE-1 (H- fyrir Hospital), og voru framleidd samtals 100 eintök af þessari gerð á árunum 1942 og 1943. Eftir að farið var að nota þyrlur hjá flotanum fengu þær auðkennið H (Helecopter), og auðkenninu á Piper sjúkravélinni var breytt í AE-1 (A- fyrir Ambulance). Einungis voru framleidd 100 eintök af þessari gerð.

Eftir að styrjöldinni lauk, tók Piper upp þráðinn þar sem frá var horfið með þessa flugvél og með lítilsháttar breytingum flaug J-5C aftur sem PA-12 Super Cruiser þann 29. oktober 1945. Nánast eina breytingin var nýr hreyfill, Lycoming O-235 sem nú skilaði 108 hestöflum. Vélin var þegar í stað sett í fjöldaframleiðslu, en seldist frekar illa og var framleiðslunni hætt þann 18. mars 1947 eftir að 3758 eintök höfðu verið framleidd. Til dæmis um hversu illa vélin seldist, má nefna að síðasta vélin sem var framleidd, seldist ekki fyrr en árið 1949!

Árið 1947 ávann PA-12 sér tölverða frægð, þegar George Truman og Clifford Evans flugu tveimur vélum af þessari gerð hringinn í kringum hnöttinn frá 9. ágúst til 10. desember. Til er nokkuð góð mynd sem tekin er á Keflavíkur flugvelli, þar sem Magnús Norðdahl stendur við hlið annarrar vélarinnar með flugmönnunum.
Einungis þrjár PA-12 vélar hafa verið skráðar á Íslandi frá upphafi. TF-CUB/GIN var sú fyrsta en hún var skráð árið 1948.


     Information in English:

The history of TF-AKK:

The aircraft that is now TF-AKK was produced in 1947 and was first registered as NC-4400M and has probably been used for some kind of commercial operations as the C in the registration was at the time used to to denote a commercial aircraft. Later the aircraft became N-4400M. At the moment, that is all we know about the aircraft´s time in the U.S.

The aircraft is registered on the 28th of July 1988 to Bogi Thorhallsson. In 1996 the aircraft is registered to Geir Þorsteinsson and in 1998 the aircraft moves to Tungubakka when it is registered to Gunnar Pálsson.

 


A brief history of Piper PA-12 Super Cruiser aircraft:

The type that was later to be known as the Piper PA-12 Super Cruiser, was created in 1939 when Piper wanted to increase the earning power of the J-3 Cub for commercial operators, by adding the third seat. The basic wings and tail were the same as on the J-3, but a new fuselage was designed. The new fuselage was built on the same principles as the older one, but was wider to accommodate the extra seat. The seating arrangement in the new fuselage was one seat at the front for the pilot, and a bench seat in the back for the passengers. A full set of controls could be provided for the back seat to make the aircraft usable for flight training. This new variant of the Cub got the designation Piper J-5 Cub Cruiser and first flew in December 1939 with a 75 horsepower Continental A-75 engine in open cowlings like those on the J-3. The aircraft went into production as the J-5A and was produced as such until 1942 when the first major change was made to the aircraft. The J-5C was introduced in early 1942 and it was equipped with a 100 horsepower Lycoming O-235 engine in enclosed cowlings. By the time the J-5C came around, the U.S had become involved in the second world war, so all production of civil aircraft stopped for the duration. A total of 1404 J-5´s were produced before the production stopped due to the war.

After the war started, the U.S. Navy developed an interest in the aircraft as an ambulance. The resulting aircraft was a basic J-5C with the turtledeck aft of the wings on hinges to allow a stretcher case to be slipped into the fuselage, head first. The resulting aircraft got the designation Piper HE-1 (H-Hospital, E- Produced by Piper). The Navy bought 100 of these aircraft in 1942 and 1943. After the Navy started to experiment with helicopters, the new contraptions got the prefix H, and the Piper design got a new prefix as AE-1 (A- for Ambulance).

After the war, Piper started again with the production of the J-5C under a new name, with minor changes. The changes to the basic design were the inclusion of a new Lycoming engine of 108 horsepower. The new aircraft was called the Piper PA-12 Super Cruiser and first flew on the 29th of October 1945. When production stopped in 1947 3758 examples had been built, but the aircraft proved to be a slow seller and the last aircraft was not sold until 1949! 

The Super Cruiser´s main claim to fame is an around the world flight flown between the 9th of August and the 10th of December 1947 by George Truman and Clifford Evans. There is a fairly well known photograph taken at Keflavik airport with local pilot Magnús Norðdahl with both of the pilots standing in front of one of the aircraft.
Only three PA-12 aircraft have been registered in Iceland, with the first one being registered as TF-CUB/GIN in 1948.


TF-AKK - Tæknilegar upplýsingar / TF-AKK Specs:

Tegund / Type:

Piper PA-12 Super Cruiser

Árgerð / Year of manufacture:

1947

Framleiðslu númer / Construction number: 

3340

Fyrri skráningar / Previous identities:

NC-4400M / N-4400M

Flugmaður / Pilot:

1

Farþegar / Passengers:

2

Vænghaf / Wing span:

10,81 meters

Lengd / Length:

6,96 meters

Hreyfill / Engine:

108 hp Lycoming O-235

Farflugshraði / Cruise speed:

95 mílur/MPH

Eigendur / Owners:

Árni Freyr Sigurðsson

Birgir K. Johnson

Eyjólfur Sigurðsson

Gunnar B. Pálsson

Pálmar Vígmundsson

Sigurður Ólafsson


Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða fleiri myndir af flugvélinni TF-AKK
Click on the picture to see a photogallery of this aircraft

Myndbönd með flugvélinni TF-AKK:
Myndbönd: Snorri B. Jónsson