sunnudagur 5 september 09 2010


Klúbbflugvél FKM - TF-GMG / Cessna 170B


Flugklúbbur Mosfellsbæjar á eina flugvél sem meðlimir klúbbsins hafa afnot af á kostnaðarverði. Flugvél FKM er TF-GMG sem er af gerðinni Cessna 170B stélhjólsflugvél. Hún er árgerð 1955 og er í mjög góðu ásigkomulagi. Í flugvélinni er 145 hestafla 6 cylendra Continental O-300 mótor.

Meðlimir mega fljúga vélini eftir að hafa undirgengist "tékk" á flugvélina.

Aðrar flugvélar sem FKM hefur átt í gegnum árin:
TF-MOS - Cessna 170B
TF-TWA - (síðar TF-MOS) - Champion Citabria
TF-FKM - Piper Super Cub
TF-GEV - J3 Piper Cub