sunnudagur 5 september 09 2010
Fréttir
27.07.10
Flug með krabbameinsveik börn

Laugardaginn 24. júlí fóru fjórar flugvélar úr Flugklúbbi Mosfellsbæjar ásamt fjórum flugvélum annarstaðar frá á Kaldármela á Mýrum til að fljúga með krabbameinsveik börn og aðstandendur þeirra á árlegri sumarhátíð SKB (Styrktarfélag krabbameinsveikra barna).

Flugvélarnar sem tóku þátt að þessu sinni voru: TF-ULF, TF-REF, TF-GMG, TF-KLM, TF-STR, TF-NEW, TF-SEX og TF-RLR. Hér má sjá hluta flugmanna dagsins ásamt Jóni Tynes sem skipulagði flugið.