|
Fornvélasýning 28. ágúst 2010
(100 myndir)
Laugardaginn 28. ágúst var haldin fornvélasýning á Tungubakkaflugvelli. Gríðarmargt fólk mætti á svæðið til að virða fyrir sér gömul farartæki af ýmsum gerðum.
Þegar mest var voru yfir 30 flugvélar og 60 bílar á svæðinu auk nokkurra dráttarvéla og mótorhjóla.
Flugklúbburinn vill þakka þeim sem komu með gömul farartæki á svæðið sérstaklega fyrir komuna.
|
2009_12_31_Gamlársdagur
(11 myndir)
Mikið líf var á Tungubökkum á árlegum flugdegi okkar á gamlársdag 2009. Enda var blíðskapa veður, logn og sól á lofti þó kalt væri. Mikið var flogið og ýmsar flugvélar litu við í heimsókn hjá okkur. Og sumir skruppu fljúgandi til Reykjavíkur og litu við í gamlársdagsveislu hjá Flugklúbbnum Þyt í Vetrargarðinum.
Myndir © Baldur Sveinsson
|
||
|
2009_06_12 Flugdagur Mosfellsbæjar - 12.06.2009
(65 myndir)
Árlega heldur Flugklúbbur Mosfellsbæjar Flugdag Mosfellsbæjar þar sem Bæjarstjórn Mosfellsbæjar ásamt stjórnendum og öðrum starfsmönum Mosfellsbæjar er boðið í grillveislu og flugtúr. Hérna eru myndir frá Flugdegi Mosfellsbæjar 12. júní 2009. Einnig var stjórnendum verktakafyrirtækisins Ístaks boðið í ár. En Ístak er með miklar framkvæmdir í nágrenni okkar í Leirvogstunguhverfinu og á Tungumelum.
Myndir © Guðni Þorbjörnsson
|
2009_03_12 Ís-Lendingar á Langavatni 12.03.2009
(38 myndir)
Nokkrir félagar úr Flugklúbbi Mosfellsbæjar fóru í stuttan en skemmtilegan leiðangur síðastliðin fimmtudag, 12. mars. Við fórum á þremur flugvélum (TF-ULF, TF-MBJ og TF-KLM) í stutt ljósmynda og kvikmyndatökuflug þar sem við lentum á ísnum á Langavatni. Verið var að taka upp myndefni fyrir sjónvarpsþáttinn Skýjum Ofar á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Það voru Snorri B. Jónsson, Jón Karl Snorrason, Guðni Þorbjörnsson og Örn Johnson sem voru á TF-ULF. Bræðurnir Þengill og Ketill Oddssynir voru á TF-KLM með Gunnar B. Pálsson afturí og svo kom Friðrik A. Helgason á TF-MBJ ásamt vini sínum. Þetta var reglulega skemmtilegt.
|
||
|
2008_11_01 Sveppahópflug
(39 myndir)
Félagar úr FKM fóru í skemmtilegt "sveppahópflug" laugardaginn 1.11.2008 á 10 flugvélum. Það voru flugvélarnar TF-MOS, TF-ULV, TF-UFO, TF-POU, TF-SPA, TF-REF, TF-KAS, TF-MBJ, TF-FUN og TF-KAH sem tóku þátt.
Flogið var með suðurströndinni og framhjá veitingastaðnum Hafið Bláa við Ölfusárósa, þaðan var flogið á Selfoss og Selfossflugvöllur yfirfloginn. Svo var flogið á Flúðir og lent þar sem heimamenn höfðu undirbúið móttöku okkar. Við vorum keyrðir á veitingastaðinn Grund þar sem við fengum vöfflur og kaffi. Þaðan var farið með okkur í vísindaferð til að skoða ræktunarverksmiðju Flúðasveppa. FKM félaginn Georg Ottósson yfirsveppur á Flúðum sýndi okkur allt ferlið sem var mjög áhugavert. Og fyrir heimför voru allir leystir út með gjöfum og fóru allir heim með poka af sveppum, tómötum og paprikum.
Hirðljósmyndari FKM Baldur Sveinsson var með í för og tók þessar glæsilegu ljósmyndir. Hægt er að skoða mun fleiri flugmyndir frá Baldri á heimasíðunni hans - www.verslo.is/baldur
Myndir © Baldur Sveinsson
|
2008_06_06 Flugdagur Mosfellsbæjar - 6. júní 2008
(65 myndir)
Árlega heldur Flugklúbbur Mosfellsbæjar Flugdag Mosfellsbæjar þar sem Bæjarstjórn Mosfellsbæjar ásamt stjórnendum og öðrum starfsmönum Mosfellsbæjar er boðið í grillveislu og flugtúr. Hérna eru myndir frá Flugdegi Mosfellsbæjar 6. júní 2008. Við sama tilefni var einnig skrifað undir framtíðar lóðaleigusamning fyrir svæði FKM á Tungubökkum.
Myndir © Guðni Þorbjörnsson
|
||
|
2005 - TF-BTH kemur úr mikilli andlitslyftingu vorið 2005
(31 myndir)
Flugvélin TF-BTH (Pitts S-2 Special) kemur úr mikilli andlitslyftingu vorið 2005. Veturinn 2004-2005 var settur nýr dúkur á TF-BTH og litum og öllu útliti hennar var gjörbreytt. Einnig var margt annað í vélinni endurnýjað og endurbætt.
Hérna fyrir neðan eru nokkrar myndir sem Sigurður Ásgeirsson, Guðni Þorbjörnsson og fleiri hafa tekið af BTH nú vorið 2005.
Ljósmyndir © Sigurður Ásgeirsson, Hákon Halldórsson og Guðni Þorbjörnsson
|
2005 - Piper dagurinn á Tungubökkum - 11.06.2005
(94 myndir)
11. júní 2005 héldum við svokallaðan "Piper dag" hjá okkur á Tungubakkaflugvelli. Allt heppnaðist þetta alveg ómetanlega vel, við fengum eins dýrlegt og fallegt veður og hugsast gat. Svo var bara ÖLL þáttaka svo margfalt meiri heldur en við höfðum búist við á svæðið. Þá er bæði um að ræða mörg loftför sem og marga áhugasama gesti og áhorfendur. Samtals komu og voru akkúrat slétt 50 loftför (42 flugvélar og 8 fisflugvélar og mótordrekar) sem að komu á svæðið og gerðu þennan dag svona glæsilegan í alla staði. Við teljum að fólk á svæðinu hafi verið u.þ.b. 150-200 manns.
|
||
|
2005 - Jodel-Ísjakaflug TF-ULV og TF-ULF
(26 myndir)
2005 - Jodel-Ísjakaflug TF-ULV og TF-ULF - 25.04.2005. Skemmtilegar og fallegar myndir sem frændurnir Haukur Snorrason og Snorri B. Jónsson á litla úlfinum TF-ULV tóku í skemmtilegri flugferð nú í lok apríl 2005 (25. apríl). Þeir voru í samfloti/samflugi með Jóni Karli Snorrasyni á TF-ULF. Ferðin snérist að miklu leyti um það að skoða stórkostlega fallega risaísjaka á sjó eins og myndirnar bera með sér. Fallegt veður og góðar aðstæður gerðu þetta að stórglæsilegu og merkilegu myndefni.
|
2004 - Uppgerð á klúbbflugvél FKM
(49 myndir)
Hérna eru myndir af fyrrum klúbbflugvél FKM TF-TWA/TF-MOS sem var af gerðinni Bellanca Citabria. Þessar myndir voru teknar veturinn 2003-2004 þegar flugvélin fékk góða andlitslyftingu, var máluð og endurnýjuð talsvert og skráningu hennar var breytt úr TF-TWA í TF-MOS.
Myndir © Guðni Þorbjörnsson & Þorsteinn Jónsson
|
||
|
2004 - Nýja klúbbflugvél FKM skoðuð og prufuð í USA
(19 myndir)
2004 - Nýja klúbbflugvél FKM (TF-MOS, Cessna 170B) skoðuð og prufuflogið í okt. 2004 - 27.10.2004. Vélin okkar var keypt í Louisiana í Bandaríkjunum í október 2004. FKM félagarnir Páll Stefánsson og Hallgrímur Jónsson fóru og grandskoðuðu vélina áður en hún var keypt og þeir prufuflugu henni.
|
2004 - Ís-lendingar á góðum laugardegi - 31.01.2004
(58 myndir)
Nokkrir FKM félagar stóðu fyrir ís-lendinga ferð á sex flugvélum 31. janúar 2004 þar sem lent var á nokkrum frosnum vötnum, stoppað og notið góðviðrisins og smá veitinga í um 10 stiga frosti. Það voru flugvélarnar: TF-AKK, TF-SPA, TF-ULV, TF-KLM, TF-UNA OG TF-TAL sem héldu í þessa skemmtilegu för. Lent var til að byrja með á Langavatni eftir lágflug yfir Hafravatn þar sem mikill mannfjöldi var. Því næst var farið áfram og lent á Stíflisdalsvatni á Mosfellsheiði og stoppað þar dágóða stund og drukkið kaffi og með því. Og að lokum heimsóttu ferðalangarnir Meðalfellsvatn í Kjós þar sem stoppað var smá stund áður en haldið var til baka á Tungubakkaflugvöll.
Ljósmyndir © Sigurður Benediktsson, Snorri B. Jónsson, Hjörtur Ingólfsson,
Þorsteinn Jónsson og Guðni Þorbjörnsson
|
2004 - FKM félagi á ferð og flugi í Ástralíu - 13-23.04.2004
(20 myndir)
FKM félaginn Gísli Einarsson var á fljúgandi ferðalagi í Ástralíu dagana 13.-23. apríl 2004. Hann sendi okkur nokkrar skemmtilegar myndir og smá frásögn með.
Gísli er síðastliðnar tvær vikur búinn að vera á flugi þvert yfir Ástralíu ásamt eiginkonu sinni. Ferð þeirra hefur í alla staði verið alveg ótrúlegt ævintýri.
Leiðin var frá Brisbane via Dalby, Charleville, Longreach (Qantas-safn), Mt Isa (Royal Flying Doctors-safn), Alice Springs (annað RFD-safn), Ayers Rock, Coober Pedy, Birdsville, Avington, Brampton Island (í Great Barrier Reef) auk nokkurra staða til að taka bensín og svo aftur til Brisbane.
Þetta var alls 16 daga flugferð og flogin vegalengd var um 4000 mílur (7000 km) og samtals nærri 40 flugtímar!
|
|
|
2003 - Stórubótarhátíðin 2003 - 22. ágúst 2003
(44 myndir)
Stórubótarhátíðin 2003. Hér er að sjá myndir frá hinni árlegu Stóru-bótarhátíð sem að fram fór á flugvellinum í Stóru-bót 22. ágúst 2003. Þar var keppt um Bótarbikarinn, en sú keppni samanstóð af flugtakskeppni, lendingakeppni og pokakastkeppni. Umsjón með keppninni höfðu staðarhaldarar í Stóru-bót þeir Jón Karl Snorrason og Gunnar Pálsson.
Alls komu 14 flugvélar og 1 þyrla á svæðið á þessum blíðskapar degi, en 7 keppendur tóku þátt í keppninni um Bótarbikarinn. Flugvélarnar sem mættu í gleðina í Bótinni voru: TF-AKK, TF-CUP, TF-EOS, TF-EXI, TF-FKR, TF-KAF, TF-KAJ, TF-MRS, TF-RLR, TF-SPA, TF-TAL, TF-TWA, TF-ULF, TF-ULV og TF-UNA
|
|||
|
2001 - 20 ára afmælishátíð FKM 4. júní 2001 - o.fl. myndir
(26 myndir)
Komnar eru hér inn á vefinn okkar nokkrar nýjar myndir sem félagi okkar Sturla Snorrason kom til vefstjóra. Þetta eru meðal annars myndir frá 20 ára afmælishátíð Flugklúbbs Mosfellsbæjar sem haldin var 4. júní 2001, auk meðal annars tveggja góðra loftmynda af Tungubökkum og fleira.
Þökkum Sturlu kærlega fyrir gott framtak í þágu vefsíðu Flugklúbbs Mosfellsbæjar.
|
|||







